Smalamennskur og réttir

Ágætu sveitungar og aðrir eigendur jarða í Skorradalshrepp. Senn líður að göngum og réttum. Réttað er á eftirtöldum dögum. 

Hornsrétt Leitarsvæði nær yfir lönd jarða í Andakíl sunnan Andakílsár og jarða í sunnan og neðanverðum Skorradal að Stóru-Drageyri.
Fyrri rétt er sunnudaginn 12.september kl:10:00 og leitardagur er  laugardaginn 11.september.
seinni rétt er laugardaginn 25.september þegar að smölun lýkur.

Svarthamarsrétt: Leitarsvæðið eru allar jarðir í Skorradalshrepp sunnan Fitjaár allt að landi Litlu – Drageyrar.
Fyrri rétt er sunnudaginn  19.september  kl: 10:00 og leitardagar eru
17.-18. september.
Seinni rétt er sunnudaginn 3.október þegar að smölun lýkur.

Oddsstaðarétt:  Leitarsvæði nær yfir öll lönd jarða í norðanverðum Skorradal.
Fyrri rétt er miðvikudaginn 15.september kl:09:00  og  leitardagar heimalanda eru 11. og 12. september.
Seinni rétt er sunnudaginn 3.október kl. 10:00

Athygli er vakin á því að landeigendum jarða ber að smala sín heimalönd og nauðsynlegt er að gera það á settum smaladögum.