Ágætu sveitungar og aðrir eigendur jarða í Skorradalshrepp. Senn líður að göngum og réttum.
Tilmæli eru um vegna Covid19 að ekki komi aðrir í réttir að þessu seinn en þeir sem eiga erindi, þ.e. fjáreigendur.
Smalað og réttað er á eftirtöldum dögum.
Hornsrétt Leitarsvæði nær yfir lönd jarða í Andakíl sunnan Andakílsár og jarða í sunnan og neðanverðum Skorradal að Stóru-Drageyri.
Fyrri rétt er sunnudaginn 13.september kl:10:00 og leitardagur er laugardaginn 12.september.
seinni rétt er laugardaginn 26.september þegar að smölun lýkur.
Svarthamarsrétt: Leitarsvæðið eru allar jarðir í Skorradalshrepp sunnan Fitjaár allt að landi Litlu – Drageyrar.
Fyrri rétt er sunnudaginn 20.september kl: 10:00 og leitardagar eru
18.-19. september.
Seinni rétt er sunnudaginn 4.október þegar að smölun lýkur.
Oddsstaðarétt: Leitarsvæði nær yfir öll lönd jarða í norðanverðum Skorradal.
Fyrri rétt er miðvikdaginn 9.september kl:09:00 og leitardagar heimalanda eru 5. og 6. september.
Seinni rétt er sunnudaginn 4.október kl. 10:00
Athygli er vakin á því að landeigendum jarða ber að smala sín heimalönd og nauðsynlegt er að gera það á settum smaladögum.