Smalamennskur og réttir 2020

Ágætu sveitungar og aðrir eigendur jarða í Skorradalshrepp. Senn líður að göngum og réttum.
Tilmæli eru um vegna Covid19 að ekki komi aðrir í réttir að þessu seinn en þeir sem eiga erindi, þ.e. fjáreigendur.

Smalað og réttað er á eftirtöldum dögum.

Hornsrétt Leitarsvæði nær yfir lönd jarða í Andakíl sunnan Andakílsár og jarða í sunnan og neðanverðum Skorradal að Stóru-Drageyri.
Fyrri rétt er sunnudaginn 13.september kl:10:00 og leitardagur er  laugardaginn 12.september.
seinni rétt
er laugardaginn 26.september þegar að smölun lýkur.

Svarthamarsrétt: Leitarsvæðið eru allar jarðir í Skorradalshrepp sunnan Fitjaár allt að landi Litlu – Drageyrar.
Fyrri rétt er sunnudaginn  20.september  kl: 10:00 og leitardagar eru
18.-19. september.
Seinni rétt er  sunnudaginn 4.október þegar að smölun lýkur.

Oddsstaðarétt:  Leitarsvæði nær yfir öll lönd jarða í norðanverðum Skorradal.
Fyrri rétt er miðvikdaginn 9.september kl:09:00  og  leitardagar heimalanda eru 5. og 6. september.
Seinni rétt er sunnudaginn 4.október kl. 10:00

Athygli er vakin á því að landeigendum jarða ber að smala sín heimalönd og nauðsynlegt er að gera það á settum smaladögum.