Smalamennskur og réttir haustið 2018

Smalamennskur og réttir

Ágætu sveitungar og aðrir eigendur jarða í Skorradalshrepp. Senn líður að göngum og réttum. Réttað er á eftirtöldum dögum.
Hornsrétt Leitarsvæði nær yfir lönd jarða í Andakíl sunnan Andakílsár og jarða í sunnan og neðanverðum Skorradal að Stóru-Drageyri.

Fyrri rétt er sunnudaginn 9.september kl:10:00 og leitardagur er laugardaginn 8.september.

seinni rétt er laugardaginn 22.september þegar að smölun lýkur.

Svarthamarsrétt: Leitarsvæðið eru allar jarðir í Skorradalshrepp sunnan Fitjaár allt að landi Litlu – Drageyrar.

Fyrri rétt er sunnudaginn 9.september kl: 10:00 og leitardagar eru

7.-8. september.

Seinni rétt er sunnudaginn 30.september þegar að smölun lýkur.

Oddsstaðarétt: Leitarsvæði nær yfir öll lönd jarða í norðanverðum Skorradal.

Fyrri rétt er miðvikdaginn 5.september kl:09:00 og leitardagar heimalanda eru 1. og 2. september.

Seinni rétt er sunnudaginn 30.september kl. 10:00

Athygli er vakin á því að landeigendum jarða ber að smala sín heimalönd og nauðsynlegt er að gera það á settum smaladögum.