Sumarhúsafólk -Reglur um sóttkví gilda líka í sveitinni

Að gefnu tilefni er vakin athygli á því að reglur um sóttkví gilda líka um þá sem kjósa að dvelja í sumarhúsi á meðan sóttkví stendur.

  • Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara sjálfir eftir aðföngum og þar af leiðandi ekki í matvöruverslanir.
  • Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara sjálfir með sorp á mótttökustöðvar sveitarfélaga.
  • Einstaklingar í sóttkví mega fara í göngutúra en verða skilyrðalaust að halda reglur um fjarlægð frá öðrum.

Vinnum saman og hindrum frekar útbreiðslu smita.

Athygli er vakin á því að brot á reglum um sóttkví varða við lög.

Lögreglustjórinn á Vesturlandi og formaður almannavarnanefndar Vesturlands,

Úlfar Lúðvíksson.