Tilkynning um undirskriftarsöfnun

Hreppsnefnd heimilar að farið verði í undirskriftarsöfnun vegna almennrar atkvæðagreiðslu á ákvörðun hreppsnefndar, sem þegar hefur verið samþykkt og snýr að formlegum sameiningarviðræðum við Borgarbyggð.
Umrætt beiðni hamlar ekki undirskriftarsöfnun samkvæmt 108 gr. 3 m.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Hreppsnefnd samþykkir einnig að undirskriftarsöfnun megi hefjast þann 14. ágúst n.k. og megi standa til 11. september n.k.

Undirskriftalistinn er kominn í loftið og hér er hlekkur á hann https://listar.island.is/Stydjum/147

Ábyrgðaraðilar með undirskriftarsöfnunni eru Friðrik Karl Friðriksson, Jón Arnar Guðmundsson og Karólína Hulda Guðmundsdóttir.