Tillaga deiliskipulags frístundabyggð 7 lóða í landi Dagverðarness á svæði 9

Skorradalshreppur

Tillaga deiliskipulags

Frístundabyggð 7 lóða í landi Dagverðarness á svæði 9

Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á 165. fundi sínu þann 27. apríl 2022 að auglýsa fyrir almenningi og öðrum hagsmunaaðilum tillögu deiliskipulags sjö frístundalóða í landi Dagverðarness á svæði 9, sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br..

Ekki er þörf á lýsingu skipulagsverkefnisins þar sem allar megin forsendur deiliskipulags liggja fyrir í breytingu Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 sem samþykkt var af hreppsnefnd þann 27. nóvember 2019.

Í megin dráttum felur skipulagstillagan í sér 7 nýjar frístundalóðir, Dagverðarnes 300, 301, 302, 303, 304, 305 og 306 og opið skógarsvæði til sérstakra nota. Skipulagssvæðið er samtals 4,86 ha að stærð og er ofan Skorradalsvegar (508).

Tillagan liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3 á Hvanneyri, 311 Borgarnes og á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is  frá 11. júlí 2022 til og með 22. ágúst 2022.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með athugasemdir við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eigi síðar en þann 22. ágúst 2022. Skila skal athugasemdum á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes eða á netfangið skipulag@skorradalur.is.

Skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps