| |
| 1. 2605001 - Ársreikningur Skorradalshrepps fyrir árið 2025 | |
Ársreikningurinn lagður fram til seinni umræðu. Fulltrúi KPMG Lilja Dögg Karlsdóttir fór yfir ársreikning.
Ársreikningurinn samþykktur. | | | | | Gestir | | Lilja Dögg Karlsdóttir, KPMG - | |
|
| 2. 2605009 - Endurskoðunarskýrsla vegna 2025 | |
| Fulltrúi KPMG Lilja Dögg Karlsdóttir fór yfir endurskoðunarskýrsluna. | | | | | Gestir | | Lilja Dögg Karlsdóttir, KPMG - | |
|
Pétur Davíðsson og Kristín Jónsdóttir yfirgáfu fundinn undir þessum dagskrálið. PD óskar eftir að varamaður komi að málinu fyrir sig.
| | 3. 2509003 - Kaldavatnsmál í Birkimóa | |
Hreppsnefnd samþykkir að gerð verði bráðabirgðatenging við vatnsveitu í Hálsaskógi og íbúðarhúsahverfi í Birkimóa sumarið 2026, ef þörf verður vegna vatnsskorts. Einnig samþykkir hreppsnefnd að byrjað verði á framkvæmdum við að finna nýtt varanlegt vatnsból fyrir Birkimóa þar sem ekki er nægilega tryggt vatn. Oddvita er falið að ganga frá tímabundnum samning við landeiganda.
Samþykkt samhljóða | | Pétur Davíðsson og Kristín Jónsdóttir komu inn á fund eftir afgreiðslu dagskrárliðs.
| |
|
| 4. 2605012 - Birkimói 2, 4 og 6 | |
Tilboðið samþykkt, oddvita falið að ganga frá lóðaleigusamningum. KJ situr hjá við afgreiðsluna. | | |
|
| 5. 2605006 - Samningar vegna öryggismyndavéla. | |
| Hreppsnefnd samþykkir að gerðir verða samningar við þá aðila sem greiða rafmagnskostnað á öryggismyndavélunum í sveitarfélaginu ásamt endurgreiðslu á rafmagnskostnaði frá tengingu myndavélanna. | | |
|
| 6. 2404022 - Raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1 | |
Oddviti leggur fram eftirfarandi tillögu: "Hreppsnefnd afléttir trúnaði á minnisblaði lögmanns sem lagt var fram á 222. fundi hreppsnefndar og felur lögmanni sveitarfélagsins að koma til félags- og húsnæðismálaráðherra mótmælum við skipun raflínunefndar og ósk um endurskoðun á þeim gjörningi. Einnig að koma til umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra mótmælum við að ákvörðuninn sé ekki kæranleg til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála."
PD leggur fram eftirfarandi bókun í stað tillögu oddvita. "Ítreka fyrri bókun Skipulagsnefndar á 199 fundi nefndarinnar. Í ljósi álits lögmanns leggur skipulags- og byggingarnefnd til við hreppsnefnd að veita lögmanni sveitarfélagsins heimild til að nota öll tiltæk ráð og heimildir til að stjórnskipuleg staða sveitarfélagsins og þar með annarra sveitarfélaga gagnvart ríkinu verði skýrð. En í ljósi þess að ný sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélaganna Borgarbyggðar og Skorradalshrepps tekur við eftir 4 daga, þá legg ég til að vísa afgreiðslu þessa máls til nýrrar sveitarstjórnar. "
Bókun PD samþykkt samhljóða og afgreiðslunni vísað til nýrrar sveitarstjórnar.
| | |
|
|
| |
| 13. 2605002F - Skipulags- og byggingarnefnd - 201 | |
| Fundargerðin samþykkt í öllum 4 liðum. | 13.1. 2605003F - Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 85 Fundargerð lögð fram til kynningar | 13.2. 2604004 - Indriðastaðahlíð 134, breyting deiliskipulags Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til HMS og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda. | 13.3. 2604002 - Dagverðarnes 62-65, svæði 8, nýtt deiliskipulag Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja deiliskipulag frístundalóða Dagverðarness 62, 63, 64 og 65 á svæði 8 til auglýsingar sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. | 13.4. 2605003 - Skógrækt í landi Stóru Drageyrar, framkvæmdaleyfisumsókn Skipulags- og byggingarnefnd boðar Skógarvörð á Vesturlandi á fund nefndarinnar þar sem stefna aðalskipulags sveitarfélagsins varðandi skógrækt verður kynnt og Landi og skógi gefið tækifæri á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri, málinu frestað. | | |
|
| 14. 2605004F - Skipulags- og byggingarnefnd - 202 | |
| Liður fundargerðarinar samþykktur. | 14.1. 2605003 - Skógrækt í landi Stóru Drageyrar, framkvæmdaleyfisumsókn Skipulags- og byggingarnefnd gerði grein fyrir stefnu aðalskipulags sveitarfélagsins og gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum Land og skóga varðandi skógrækt. Land og skógur vinna að málinu áfram og mun senda inn uppfærð gögn í samræmi við umræður á fundinum. | | |
|
| |
| 8. 2605007 - Fundargerðir heilbrigðisnefndar 2026 | |
| 202_2026 0518_Samþykkt fundargerð.pdf | | |
|
|
|
| 11. 2601008 - Fundargerðir undirbúningsstjórnar sameiningar sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps | |
| 8. fundur undirbúningsstjórnar 22.04.2026.pdf | | 9. fundur undirbúningsstjórnar 20.05.2026.pdf | | |
|
|
| |
| 15. 2604002 - Dagverðarnes 62-65, svæði 8, nýtt deiliskipulag | |
| Hreppsnefnd samþykkir deiliskipulag frístundalóða Dagverðarness 62, 63, 64 og 65 á svæði 8 til auglýsingar sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að fallið verði frá lýsingu skipulagsverkefnis og kynningu tillögu þar sem forsendum hennar og umhverfismat samræmist stefnu aðalskipulagsins sbr. 3. og 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Óska skal umsagnar lögbundinna umsagnaraðila um tillögu deiliskipulagsins sem eru Heilbrigðiseftirlits Vesturlands (HeV), Land og skógur, Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun, Náttúruverndarstofnun, Slökkviliðs Borgarbyggðar og Vegagerðin. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. | | d132-Dagverðarnes_A2_2000_20260417.pdf | | |
|
| 16. 2604004 - Indriðastaðahlíð 134, breyting deiliskipulags | |
| Hreppsnefnd samþykkir óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til HMS og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda. | | |
|