Það var yndislegt veður og huggulegt hjá okkur í Skorradal þegar Árni Hjörleifsson oddviti Skorradalshrepps gróðursetti fyrir ófæddar kynslóðir, Reynir Skorri frá Mófellstaðarkoti gróðursetti fyrir drengi og Ástrún frá bænum Neðri-Hrepp gróðursetti fyrir stúlkur. Sigríður Júlía hjá Vesturlandsskógum sá til þess að allt færi rétt fram. Gróðursetningin var til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur af tilefni þess að 35 ár voru liðin frá kjöri hennar til forseta Íslands.
Gróðursett var í hátíðarlundi sem er í landi Stálpastaðaskógar.