Laugardaginn 10. sept kl. 14 -16:30 verður haldið málþing á Fitjum um Guðmund Ólafsson

Guðmundur var fæddur að Setbergi við Hafnarfjörð árið 1825 . Hann var einn af best menntuðu búfræðingum sinnar tíðar; nam búfræði um fjögurra ára skeið í Danmörku og kom heim um 1850. Guðmundur varð áhrifamikill á því sviði, bæði sem ráðunautur og …höfundur búfræðirita. Þá var hann um skeið alþingismaður Borgfirðinga, en hann bjó sín búskaparár í Borgarfirðinum, þar af síðustu 25 árin á Fitjum í Skorradal þar sem hann dreymdi um að koma á búnaðarskóla.

Guðmundur var samverkamaður Jóns Sigurðssonar forseta, og naut hvatningar hans í starfi sínu. Bréf milli þeirra hafa varðveist.

Á málþinginu verða flutt þrjú erindi um Guðmund :

K. Hulda Guðmundsdóttir á Fitjum mun segja frá Guðmundi langafa sínum. ,,Hver var Guðmundur Ólafsson?“

Ingi Sigurðsson prófessor, frá Reykjum í Lundarreykjadal mun skoða fjórar af ritgerðum Guðmundar í sögulegu samhengi.

Bjarni Guðmundsson prófessor og safnsstjóri á Hvanneyri fjallar um nokkrar jarðræktarhugmyndir Guðmundar, efni þeirra og áhrif.

Þá munu Magnús Hallur Jónsson og Bjarni Frímann Bjarnason báðir við nám í „Hans Eisler“ tónlistarháskólanum í Berlín flytja íslensk lög, en Magnús Hallur á ættir að rekja í Fram-Skorradal. Höskuldur Einarsson síðasti bóndi í Vatnshorni var langafi hans.

Málþinginu mun stjórna Bergur Þorgeirsson forstöðumaður Snorrastofu í Reykholti.

Málþingið verður haldið í Skemmunni á Fitjum. Það hefst kl. 14 og er gert ráð fyrir því ljúki um kl. 16. Á boðstólum verður miðdegishressing. Gjald fyrir þátttöku í málþinginu m/kaffi verður kr. 500,-

Það eru afkomendur Guðmundar Ólafssonar á Fitjum og Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri sem að málþinginu standa, með atbeina Snorrastofu í ReykholOn Mon, 05 Sep 2011 14:18:43 +0000