Leitir og réttir 2015

Ágætu sveitungar og aðrir eigendur jarða í Skorradalshrepp. Senn líður að leitum og réttum. Réttað er á eftirtöldum dögum.

Hornsrétt: Leitarsvæði nær yfir lönd jarða í Andakíl sunnan Andakílsár og jarða í sunnan og neðanverðum Skorradal að Stóru-Drageyri.

Fyrri rétt er sunnudaginn 13.september kl:10:00 og leitadagur er laugardaginn 12.september.

Seinni rétt er laugardaginn 26.september þegar að smölun lýkur.

Svarthamarsrétt: Leitarsvæðið eru allar jarðir í Skorradalshrepp sunnan Fitjaár allt að landi Litlu – Drageyrar.

Fyrri rétt er sunnudaginn 20.september kl: 10:00 og leitadagar eru

18.-19. september.

Seinni rétt er sunnudaginn 4.október þegar að smölun lýkur.

Oddsstaðarétt: Leitarsvæði nær yfir öll lönd jarða í norðanverðum Skorradal.

Fyrri rétt er miðvikdaginn 16.september kl:09:00 og leitadagar heimalanda eru 12.og 13. september.

Seinni rétt er sunnudaginn 4.október kl. 10:00 en smölun fer fram 3 október.

Athygli er vakin á því að landeigendum jarða ber að smala sín heimalönd og nauðsynlegt er að gera það á settum leitadegi.
Frekari upplýsingar veitir oddviti í síma 892-0424 eða í tölvupósti arnihjorl@gmail.com