Lýsing breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022

Lýsing breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022

Stefnumörkun um bátaskýli og bátaaðstöðu við Skorradalsvatn

Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á 167. fundi sínu þann 27. maí 2022 að kynna fyrir almenningi og öðrum hagsmunaaðilum lýsingu breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar stefnumörkun um bátaskýli og bátaaðstöðu við Skorradalsvatn skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s. br. á grundvelli úttektar á stöðu bátaskýla við Skorradalsvatn, dags. maí 2022.

Í megin dráttum felur skipulagsbreytingin í sér stefnumörkun um bátaskýli og bátaaðstöðu í kafla 5.3 og bátalægi í kafla 5.10 í greinargerð aðalskipulags, enn fremur að skilgreind eru á aðalskipulagsuppdrætti bátalægi í landi Grundar, Vatnsenda, Dagverðarness, Stálpastaða, Háafells, Fitja, Litlu-Drageyrar, Stóru Drageyrar og Vatnshorns. Fyrir eru skilgreind bátalægi í landi Hvamms, Fitja, Indriðastaða og Vatnsenda.

Lýsingin liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3 á Hvanneyri, 311 Borgarnes og á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is frá 11. júlí 2022 til og með 5. ágúst 2022. Einnig verður opinn dagur á skrifstofu sveitarfélagsins þann 2. ágúst 2022 milli kl. 10 og 12 þar sem allir eru velkomnir til að kynna sér efni lýsingarinnar.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingar um efni lýsingarinnar. Ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eigi síðar en þann 5. ágúst 2022. Skila skal ábendingum á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes eða á netfangið skipulag@skorradalur.is. 

a1220-Lýsing Bátaskýli_2022_05_23

a1220-Bátaskýli_Úttekt

Skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps