Lýsing breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022

Hreppsnefnd samþykkti á 127. fundi sínum þann 12. desember 2018 að kynna fyrir almenningi og öðrum hagsmunaaðilum lýsingu breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar breytta landnotkun í landi Dagverðarness skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s. br..
Í megin dráttum felur skipulagsbreytingin í sér að hluti frístundabyggðasvæði, sem er 3,9 ha að stærð, færist til og óbyggt svæði minnkar, en í þess stað verður skilgreint skógræktarsvæði.
Lýsingin liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3 á Hvanneyri og á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is frá 25. janúar til og með 19. febrúar 2019. Einnig verður opinn dagur á skrifstofu sveitarfélagsins þann 29. janúar 2019 milli kl. 10 og 12 þar sem allir eru velkomnir til að kynna sér efni lýsingarinnar.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingar um efni lýsingarinnar. Ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi þann 19. febrúar 2019. Skila skal ábendingum á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes eða á netfangið skipulag@skorradalur.is.