Breyting á Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022 í landi Indriðastaða á svæði er nefnist Dyrholt

Lýsing beytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022
Í landi Indriðastaða á svæði er nefnist Dyrholt
Í megin dráttum felur skipulagsbreytingin í sér að svæði sem eru skilgreind, annars vegar sem verslun- og þjónusta og er 2 ha að stærð, og hins vegar opið svæði til sérstakra nota og er 5 ha að stærð, verði breytt í samfellda frístundabyggð.
Lýsingin liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3 Hvanneyri, 311 Borgarnes og á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is frá 1. mars til og með 22. mars 2019. Einnig verður opinn dagur á skrifstofu sveitarfélagsins þann 12. mars 2019 milli kl. 10 og 12 þar sem allir eru velkomnir til að kynna sér efni lýsingarinnar.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingar um efni lýsingarinnar. Ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eigi síðar en þann 22. mars 2019. Skila skal ábendingum á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes eða á netfangið skipulag@skorradalur.is.