Menningarráð Vesturlands styrkir

Menningarráð Vesturlands auglýsir menningarstyrki og
stofn- og rekstrarstyrki ársins 2014.
Umsóknarfrestur rennur út 1. desember 2013.
Menningarstyrkir. Tilgangur menningarstyrkjanna er að efla menningarstarfsemi á Vesturlandi. Árið 2014 mun Menningarráð Vesturlands leggja áherslu á eftirfarandi verkefni:

  • Verkefni sem fjölga atvinnutækifærum í listum, nýsköpun og ferðaþjónustu.
  • Verkefni sem styrkja listræna sköpun og samstarf ungs fólks á Vesturlandi.
  • Verkefni sem styrkja listræna sköpun og hugsun í verkefnum barna og unglinga.
  • Verkefni sem undirbúa og efla samstarf á Vesturlandi, milli landsvæða og landa.

Umsækjendur geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Vesturlandi.
Stofn- og rekstrarstyrkir. Tilgangur styrkjanna er að efla starfsemi á sviði lista, safna og menningararfs. Stuðla að nýsköpun og styðja við starfsemi sem fjölgar atvinnutækifærum á Vesturlandi. Umsækjendur geta verið félög, fyrirtæki stofnanir og sveitarfélög á svæðinu. Umsækjendur verða að geta sýnt fram á fleiri fjárhagslega bakhjarla. Styrkir ráðsins geta aldrei numið hærri fjárhæð en helmings alls kostnaðar.
Athugið að hér eru tvenns konar styrkveitingar auglýstar, annars vegar menningarstyrkir og hins vegar stofn- og rekstrarstyrkir og er því um tvö aðskilin umsóknarform að ræða.Auglýsingin er háð fjárlögum ársins 2014.
Viðvera menningarfulltrúa verður á eftirfarandi stöðum á Vesturlandi. Þar verða menningarstyrkir og stofn- og rekstrarstyrkir kynntir í samstarfi við heimamenn.
Búðardalur: Þriðjudaginn 5. nóvember kl. 12. -14 í stjórnsýsluhúsinu. Elísabet Haraldsdóttir og Halla Steinólfsdóttir formaður menningarráðs.
Borgarnes: Miðvikudaginn 6.Nóvember kl. 14-16 á skrifstofu Menningarráðs Bjarnarbraut 8. Elísabet Haraldsdóttir og Einar Þorvaldsson, atvinnuráðgjöf SSV
Stykkishólmur: Föstudaginn 8. nóvember. kl. 12-14
Elísabet Haraldsdóttir og Dagbjört Höskuldsdóttir, formaður safna og menningarnefndar.
Snæfellsbær. Föstudaginn 8. nóvember kl 12.- 14.í Átthagastofu, Ólafsvík.
Elísabet Haraldsdóttir, Kristín Björg Árnadóttir, símenntun og Margrét Björk Björnsdóttir, atvinnuráðgjafi.
Grundarfjörður: Föstudaginn 8. nóvember kl. 15.-16 í Sögusafninu Grundargötu
Elísabet Haraldsdóttir og Alda Hlín Karlsdóttir menningarfulltrúi Grundarfjarðar.
Akranes: Mánudaginn 11. nóvember kl. 12 -14í Garðakaffi Safnasvæðinu Görðum. Elísabet Haraldsdóttir og Anna Leif Elídóttir, verkefnastjóri menningarmála.
Hvalfjarðarsveit. Mánudaginn 11. nóvember k. 15-16 í Stjórnsýsluhúsinu
Elísabet Haraldsdóttir og Anna Leif Elídóttir form. menningar- og atvinnuþróunarmála.