Sumarkveðja

Veturinn var nokkuð góður hér í Skorradalnum, t.d. ekki mikill snjór og því færð nokkuð góð og vonandi verður sumarið í sumar, ekki eins vætusamt og síðasta sumar. Ýmis mál eru auðvita á borði hreppsnefndar og þar má helst nefna, lagningu ljósleiðara og verndaráætlun fyrir framdalinn. Síðustu misseri hefur verið unnið að lagningu ljósleiðara og hefur þunginn af þeirri framkvæmd, …

Hreppsnefndarfundur nr. 131 verður haldinn miðvikudaginn 10.apríl kl:15:00

Dagskrá: 1. UMF (sundlaug) gestur Guðni Páll Sæmundsson 2. Netvöktun (samningur) 3. Heimasíða (samningur) 4. Ársreikningur 2018 5. Útivistasvæði ( drög að stefnu) 6. Forkaupsréttur ( Íbúðalána sjóður) 7. Bréf: EFS 8. Lífeyrismál (minnisblað) 9. Brákarhlíð (ályktun) 10. Bókhaldsmál ( PD / KPMG) Framlagðar fundagerðir: SSV- SÍS- Faxaflóahafnir- Skipulags- og byggingarnefnd.

Tillaga að verndarsvæði í byggð fyrir framdalinn í Skorradal

Tillaga að verndarsvæði í byggð fyrir framdalinn í Skorradal Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á 129. fundi sínum þann 20. febrúar 2019 að auglýsa tillögu að verndarsvæði í byggð fyrir framdalinn í Skorradal, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga um verndarsvæði í byggð nr. 87/2015. Í megin dráttum felur tillagan í sér að vernda svipmót búsetulandslags framdalsins auk þess að viðhalda þekkingu …

Tillaga nýs deiliskipulags í landi Dagerðarnes neðan veg svæði 5

Tillaga nýs deiliskipulags Í landi Dagverðarness á svæði 5, lóðir 58-61 Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á 129. fundi sínum þann 20. febrúar 2019 að auglýsa fyrir almenningi og öðrum hagsmunaaðilum tillögu deiliskipulags fjögurra frístundalóða í landi Dagverðarness á svæði 5, sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br.. Ekki er þörf á lýsingu skipulagsverkefnisins þar sem allar megin forsendur deiliskipulags …

Breyting á Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022 í landi Indriðastaða á svæði er nefnist Dyrholt

Lýsing beytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 Í landi Indriðastaða á svæði er nefnist Dyrholt Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á 129. fundi sínum þann 20. febrúar 2019 að kynna fyrir almenningi og öðrum hagsmunaaðilum lýsingu breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar breytta landnotkun í landi Indriðastaða skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s. br.. Í megin dráttum felur skipulagsbreytingin í sér …

Lýsing breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022

Hreppsnefnd samþykkti á 127. fundi sínum þann 12. desember 2018 að kynna fyrir almenningi og öðrum hagsmunaaðilum lýsingu breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar breytta landnotkun í landi Dagverðarness skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s. br.. Í megin dráttum felur skipulagsbreytingin í sér að hluti frístundabyggðasvæði, sem er 3,9 ha að stærð, færist til og óbyggt svæði …

Drög að fornleifaskráningu í Skorradal

Hér er hægt að kynna sér drög að fornleifaskráningu í Skorradal Fornleifaskráning – Drög Indriðastaðir Indriðastaðir – Mófellsstaðir-Kaldá Mófellsstaðir – Mófellsstaðakot Horn Efri – Hreppur Neðri – Hreppur Hálsar – Grund – Vatnsendi Stóra – Drageyri Skarðsheiði

Drög að verndaráætlun fyrir framdal Skorradals

Drög að tillögu að verndaráætlun fyrir Framdalinn liggur fyrir sem ráðgjafafyrirtækið Alta ehf. hefur unnið fyrir Skorradalshrepp. Við Mótun tillögunnar voru haldnir samráðsfundir með Fornleifarstofnun Íslands, sem sá um aðalskráningu fornleifa og húsakönnun, Skógræktinni og Framdalsfélaginu. Enn fremur voru landeigendur, umráðamenn lands og félag sumarhúsaeigenda á Fitjum boðaðir til sameiginlegs samráðsfundar. Hægt er kynna sér drögin hér

Rotþróarhreinsun 2018

Rotþróarhreinsun 2018 Hreinsitækni ehf. er byrjað að hreinsa rotþrær og vill brýna fyrir fólki að hafa allt klárt fyrir rotþróahreinsun. Koma lyklum til þeirra eða hafa hlið opið og eins hafa alla stúta uppúr og athuga merkingar á þeim t.d. setja veifu. Hægt að senda fyrirspurn eða leiðbeiningar til Hreinsitækni ehf. á gisli@hrt.is