Smalamennskur og réttir

Ágætu sveitungar og aðrir eigendur jarða í Skorradalshrepp. Senn líður að göngum og réttum. Réttað er á eftirtöldum dögum.
Hornsrétt (Hreppsrétt): Leitarsvæði nær yfir lönd jarða í Andakíl sunnan Andakílsár og jarða í sunnan og neðanverðum Skorradal að Stóru-Drageyri.

Fyrri rétt er sunnudaginn 14.september kl:10:00 og leitardagur er laugardaginn 13.september.

seinni rétt er laugardaginn 28.september.

Svarthamarsrétt: Leitarsvæðið eru allar jarðir í Skorradalshrepp sunnan Fitjaár allt að landi Litlu – Drageyrar.

Fyrri rétt er sunnudaginn 14.september kl: 10:00 og leitardagar eru

12.-13. september.

Seinni rétt er sunnudaginn 28.september.

Oddsstaðarétt: Leitarsvæði nær yfir öll lönd jarða í norðanverðum Skorradal.

Fyrri rétt er miðvikdaginn 10.september kl:09:00 og leitardagar eru 6. og 7. september.

Seinni rétt er sunnudaginn 5.október.

Athygli er vakin á því að landeigendum jarða ber að smala sín heimalönd.
Oddviti Skorradalshrepps.