Lýsing breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti á 107. fundi sínum þann 3. október 2017 að kynna fyrir almenningi og öðrum hagsmunaaðilum lýsingu breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar breytta landnotkun í landi Indriðastaða og Mófellsstaða skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s. br..
Í megin dráttum felur skipulagsbreytingin í sér að frístundabyggðasvæði er stækkað, efnistökusvæði eru tekin út og vatnsból ásamt vatnsverndarsvæði er skilgreint.
Lýsingin liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3 á Hvanneyri og á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is frá 20. október til og með 3. nóvember 2017. Einnig verður opinn dagur á skrifstofu sveitarfélagsins þann 24. október 2017 milli kl. 10 og 12 þar sem allir eru velkomnir til að kynna sér efni lýsingarinnar.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingar um efni lýsingarinnar. Ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi þann 3. nóvember 2017. Skila skal ábendingum á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes eða á netfangið skipulag@skorradalur.is.
Skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps