Smalamennskur og réttir haustið 2017

Ágætu sveitungar og aðrir eigendur jarða í Skorradalshrepp. Senn líður að göngum og réttum.
Réttað er á eftirtöldum dögum.
Hornsrétt: Leitarsvæði nær yfir lönd jarða í Andakíl sunnan Andakílsár og jarða í sunnan og neðanverðum Skorradal að Stóru-Drageyri. Fyrri rétt er sunnudaginn 10.september kl:10:00 og leitardagur er laugardaginn 9.september.

seinni rétt er laugardaginn 23.september þegar að smölun lýkur.

Svarthamarsrétt: Leitarsvæðið eru allar jarðir í Skorradalshrepp sunnan Fitjaár allt að landi Litlu – Drageyrar.

Fyrri rétt er sunnudaginn 10.september kl: 10:00 og leitardagar eru

8.-9. september.

Seinni rétt er sunnudaginn 1.október þegar að smölun lýkur.

Oddsstaðarétt: Leitarsvæði nær yfir öll lönd jarða í norðanverðum Skorradal.

Fyrri rétt er miðvikdaginn 6.september kl:09:00 og leitardagar heimalanda eru 2. og 3. september.

Seinni rétt er sunnudaginn 1.október kl. 10:00

Athygli er vakin á því að landeigendum jarða ber að smala sín heimalönd og nauðsynlegt er að gera það á settum smaladögum.
Oddviti Skorradalshrepps.