Fyrstu fjárréttir haustins verða um næstu helgi og verður réttað í Hreppsrétt við fjárhúsin í Neðri – Hrepp sunnudaginn 13. september kl. 10.
Hreppsnefndarfundur
Fundur verður haldinn í hreppsnefnda Skorradalshrepps miðvikudaginn 9. september kl:21 að Grund.
Fundagerð byggingar- og skipulagsnefndar
Fundargerð 37. fundar byggingar- og skipulagsnefndar Skorradalshrepps er kominn inn á vefinn.
Áskrifandi af frétt
Núna er hægt að vera áskrifanda af fréttasíðu Skorradalshrepps. Með því að smella á Gerast áskrifandi að fréttum Skorradalshrepps þá er send tilkynning í tölvupósti í hvert sinn sem ný frétt fer inn á vefinn. Endilega nýtið ykkur þennan möguleika.
Fundur í byggingar- og skipulagsnefnd
Næsti fundur í byggingar- og skipulagsnefnd Skorradalshrepps verður miðvikudaginn 2. sept kl:20.30 að Hvanneyri.
Fundargerðir
Fundargerð frá síðasta hreppsnefndarfundi er kominn inn á vefinn ásamt síðustu fundargerð umhverfisnefndar.
Messa í Fitjakirkju
Messað verður í Fitjakirkju sunnudaginn 30. ágúst kl. 14.
Hreppslaug
Hreppslaug verður opinn helgina 29. og 30. ágúst n.k. frá 12-20. Verður þetta síðast helgin sem laugin verður opinn í sumar.
Fundargerðir
Fundargerðir síðustu þriggja hreppsnefndafunda eru nú loksins komnar inn á vefinn.
Gallerí fjósaklettur á Fitjum í Skorradal
Gunnlaugur Stefán Gíslason (Gulli) opnar málverkasýningu laugardaginn 27. júní kl. 14 í Gallerí Fjósaklettur á Fitjum og stendur sýningin til 19. júlí. Opið er daglega frá kl. 13 og til mjalta. Gulli er fæddur í Hafnarfirði 1944, sonur Vigdísar K. Stefánsdóttur frá Fitjum. Hann hefur starfað sem myndlistamaður og myndlistakennari við Myndlista- og handíðaskóla Íslands ,Myndlistaskóla Reykjavíkur, Miðstöð símenntunar í …