Tilkynning til sumarhúsaeigenda í Skorradalshreppi.

VILTU LEIGJA OKKUR SUMARBÚSTAÐ Í SKORRADAL?

Kæri sumarbústaðaeigandi.
Við rekum heilsutengda ferðaþjónustufyrirtækið Coldspot, sem sérhæfir sig í ferðum um Vesturland. Ferðir okkar eru nýlunda hér á landi.
Við óskum eftir samstarfi við þig og aðra áhugasama sumarbústaðareigendur í Skorradal um leigu á sumarbústöðum til erlendra gesta okkar í 1-10 daga í senn á hvaða tíma ársins sem er, allt eftir samkomulagi. Bústaðurinn þarf að vera í góðu ásigkomulagi.

Leiga á sumarbústaðnum er tilvalin leið til að bæta nýtinguna á honum, auka tekjur heimilisins og taka þátt í mjög spennandi ferðaþjónustuverkefni á Vesturlandi. Stofnun og rekstur Coldspot styður einnig við sóknaráætlun Vesturlands en fyrirtækið fékk nýlega styrk úr uppbyggingarsjóði Vesturlands til að auka fjölbreytni í ferðaþjónustu á svæðinu.
Hefurðu áhuga?
Hafðu þá samband við Aldísi Örnu Tryggvadóttur á Hvanneyri á netfangið coldspot@coldspot.is eða í síma 869-1033.
Þú finnur ýtarlegar upplýsingar um Coldspot og okkur á vefslóðinni www.coldspot.is og
Facebook.
Við hlökkum til að heyra frá ykkur!